Laust starf - Sumarafleysing - Móttaka og almenn skrifstofustörf
Matvælastofnun auglýsir eftir einstaklingi með ríka þjónustulund til sumarafleysinga á inn- og útflutningsdeild sem er með aðsetur á Laugavegi 166. Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst.
Inn- og útflutningsdeild MAST hefur umsjón með innflutningi dýra og afurða sem og útgáfu vottorða vegna útflutnings afurða. Helstu verkefni snúa að afgreiðslu og móttöku viðskiptavina sem og afgreiðsla ýmissa erinda í samvinnu við starfsfólk deildarinnar. Viðkomandi tekur þátt í teymisvinnu varðandi inn- og útflutning gæludýra en kemur að ýmsum öðrum verkefnum sem falla undir deildina. Viðkomandi hefur auk þess umsjón með innkaupum og pöntunum birgða fyrir starfstöðina, auk utanumhalds um bókanir fundarherbergja og vinnubíla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun og móttaka
- Skráning og úrvinnsla erinda
- Ýmis aðstoð við starfsfólk og viðskiptavini
- Vinnsla og frágangur gagna vegna innflutnings gæludýra
- Innkaup og pantanir
- Önnur almenn skrifstofustörf
Hæfniskröfur
- Æskilegt er að hafa lokið stúdentsprófi
- Reynsla af skrifstofu- og þjónustustörfum
- Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Nákvæm vinnubrögð
- Ökuréttindi
- Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
- Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hrund Hólm
Tölvupóstur: hrund.holm@mast.is