Fara í efni

Laust starf - Forritari

Matvælastofnun er að leita að öflugum einstaklingi í spennandi starf forritara. Starfið er á Selfossi eða öðrum starfsstöðvum stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins. Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni forritara felast í þróun, viðhaldi og rekstri hugbúnaðarlausna, þar sem áhersla er lögð á að tryggja stöðugan og skilvirkan rekstur kerfa. Starfið krefst virkrar þátttöku í nýsköpun og þróun í náinu samstarfi við aðra sérfræðinga, auk þess sem forritari tekur þátt í hönnunar- og greiningarvinnu ásamt teyminu. Forritarar vinna bæði sjálfstætt og í samvinnu við teymi, allt eftir eðli og þörfum verkefna hverju sinni. Einnig felst í starfinu að bæta og þróa ferla, verklag og vinnubrögð innan teymisins til að stuðla að stöðugum umbótum og betri árangri.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur góða samskiptahæfni, lausnamiðaða hugsun og skipulag í vinnubrögðum.
  • Sýnir frumkvæði, drifkraft og hefur jákvætt viðmót.
  • Hefur vilja til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • Hefur vilja til að tileinka sér nýjustu tækni og lausnir.
  • Hefur vilja til að þróast í starfi og miðla þekkingu.
  • Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammnum.
  • Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.

Hæfniskröfur

  • Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða skyldum greinum.
  • Reynsla af .NET / C#.
  • Reynsla af SQL (PostgreSQL eða álíka).
  • Reynsla af smíði veflausna.
  • Reynsla af React, Next.js.
  • Þekking á AWS er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsækjandi sækir um starf. Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur viðburði.

Sótt er um starfið á Starfatorg.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldór B Hreinsson

Sviðsstjóri

Tölvupóstur: halldor.hreinsson@mast.is

Sími: 8251074


Getum við bætt efni síðunnar?