Laust starf - Eftirlitsdýralæknir inn- og útflutningsdeild
Viltu taka þátt í að stuðla að matvælaöryggi og fyrirbyggja að dýrasjúkdómar berist til landsins?
Matvælastofnun leitar að dýralækni á inn- og útflutningsdeild á starfsstöð stofnunarinnar í Reykjavík til þess að sinna fjölbreyttum verkefnum, með áherslu á vottun eldisafurða en einnig eftirlit með inn- og útflutningi gæludýra. Á inn- og útflutningsdeild starfa 13 sérfræðingar og mikil áhersla er lögð teymisvinnu og umbætur í verklagi.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda, dýra og plantna. Við leggjum áherslu á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag. Hlutverk MAST er að standa vörð um heilsu manna, dýra og plantna og auka þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Til að rækta hlutverk okkar þurfum við að búa yfir framúrskarandi þekkingu á matvælaöryggi, heilbrigði og velferð dýra ásamt því að ástunda traust, vandað og áhættumiðað eftirlit. Gildi Matvælastofnunar eru fagmennska, gagnsæi og traust.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vottun afurða vegna útflutnings með áherslu á eldisafurðir.
- Eftirlit með inn- og útflutningi gæludýra
- Viðbrögð við frávikum
- Samskipti við hagaðila, þ.e. stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga.
- Virk þátttaka í umbótastarfi.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa dýralæknismenntun og gilt starfsleyfi á Íslandi. Þekking á eða reynsla af eftirliti er kostur. Öguð vinnubrögð, góð samskiptahæfni, góð tölvufærni og geta til að starfa sjálfstætt og í teymi eru áskilin. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af og innsýn í opinbera stjórnsýslu. Góð framkoma og lipurð í samskiptum eru skilyrði. Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum. Íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrund Hólm deildarstjóri Inn- og útflutningsdeildar í gegnum tölvupóst (hrund.holm@mast.is) og í síma 530-4800. Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknin gildir í sex mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands. Nánari upplýsingar um Matvælastofnun er að finna á heimasíðu stofnunarinnar www.mast.is.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 30.09.2026.
Sótt er um starfið á Starfatorg.is.
Nánari upplýsingar veitir
- Hrund Hólm, Deildarstjóri Inn- og útflutningsdeildar
- Tölvupóstur: hrund.holm@mast.is
- Sími: 530-4800
- Inga Guðrún Birgisdóttir, Mannauðsstjóri
- Tölvupóstur: inga.birgisdottir@mast.is
- Sími: 530-4800