Laust starf- Eftirlitsdýralæknir SV-umdæmi
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?
Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðvesturumdæmi með starfsstöð á Laugarvegi 166. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meginmarkmið starfsins er að framkvæma opinbert eftirlit með velferð gæludýra, frumframleiðslu og ábendingum.
Hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun skilyrði
- Býr yfir góðri þekkingu á þörfum, atferli og umönnun mismunandi dýrategunda
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg
- Bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og aftir af prófskírteini. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað.
Sótt er um starfið á Starfatorg.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ellen Ruth Ingimundardóttir - ellen.ingimundardottir@mast.is - 530-4800