Fara í efni

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í pylsum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir sinnepi, við öllum framleiðslulotum af  Frankfurt pylsur frá Pylsumeistaranum ehf. vegna þess að þær innihalda sinnep sem ekki er getið á umbúðunum. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna.

Innköllunin á við allar framleiðslulotur af Frankfurt pylsum:

  • Vöruheiti: Frankfurter pylsa
  • Vörumerki: Pylsumeistarinn
  • Framleiðandi: Kjöt-og pylsumeistarinn ehf, 112 Kársnesbraut, 200 Kópavogur
  • Best fyrir dagsetning: Allar lotur
  • Strikamerki: 2300017004724
  • Dreifing: Melabúðin og Pylsumeistarinn.

Neytendum sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir sinnepi er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila í verslun.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?