Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í snakki
Innkallanir -
17.02.2026
Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir hveiti, við Boy Bawang maíssnakk vegna vanmerkinga en varan er ekki merkt innihalda hveiti (glúten). Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurnesja.
Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Boy Bawang
- Vöruheiti: Snack corn chick./lech.man
- Geymsluþol: best fyrir: 14-3-2026; 17-6-2026; 18-8-2026; 14-11-2026; 14-1-2027; 17-3-2027; 24-4-2027; framleiðsludagsetning 24-10-2025
- Nettómagn: 90 g:
- Framleiðandi: KSK Food Products
- Framleiðsluland: Filippseyjar
- Innflytjandi: Heuschen & Schrouff Oriental Food - Hollandi
- Innflutningsaðilar á Íslandi: Kína Panda ehf., Hafnargötu 90, Reykjanesbæ og einnig Lagsmaður-Fiska.is, Nýbýlavegur 26, 200 Kópavogur
- Dreifing: Kína Panda ehf., Hafnargötu 90, Reykjanesbæ og Lagsmaður-Fiska.is, Nýbýlavegur 26, 200 Kópavogur

Neytendur sem hafa keypt vöruna og sérstaklega þeir sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir hveiti að neyta hennar ekki, farga eða skila í verslun.