Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í fiskrétti
Innkallanir -
03.04.2014
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um vanmerkta vöru á markaði. Um er að ræða tilbúinn fiskrétt sem er með vanmerktan ofnæmis- og óþolsvald.Varan inniheldur salthnetur, skv. innihaldslýsingu. Ekki kemur fram í innihaldslýsingu að hneturnar séu jarðhnetur. Framleiðandi vörunnar hefur innkallað hana af markaði í samráði við Matvælastofnun.
- Vöruheiti: Fiskur-Beint í ofninn
- Lýsing: Ferskur lax umslög m/rjómaosti, strikanúmer 5694230101429.
- Geymsluþol: Best fyrir 03.04.2014
- Framleiðandi: Ópal Sjávarfang, Hafnarfirði
- Geymsluskilyrði: kælivara
- Dreifing: Nettó, Hagkaup
Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis-og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá fyrirtækinu með mynd af vörunni.