Fara í efni

Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í bragðaref

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun dreifingar og innköllunar Bónus bragðarefs af markaði vegna vanmerkingar á afurð úr soja sem er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.


  • Vöruheiti: Bónus bragðarefur.
  • Framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Bónus, Skútuvogi 13, 104 Reykjavík. Varan er framleidd af Kjörís, Hveragerði, fyrir Bónus.
  • Auðkenni / Skýringatexti: Um er að ræða vanilluís í 2 l umbúðum með karamellusósu og sælgæti. Í sælgætinu er sojalesitín. Í innihalds-lýsingu á umbúðum vörunnar kemur ekki fram að hún innihaldi sojalesitín. Soja og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við merkingar vörunnar. Strikanúmer 5690581135601.




  • Laga- / reglugerðarákvæði: 7. tl. 6. gr.,12., 13. (sbr. og viðauka við reglugerð nr. 631/2010 um breytingu á reglugerð nr. 503/2005), 14. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum. 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
  • Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Bónus um land allt.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?