Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í bragðaref
Frétt -
21.06.2011
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um stöðvun dreifingar og innköllunar Bónus bragðarefs af markaði vegna vanmerkingar á afurð úr soja sem er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.
- Vöruheiti: Bónus bragðarefur.
- Framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Bónus, Skútuvogi 13, 104 Reykjavík. Varan er framleidd af Kjörís, Hveragerði, fyrir Bónus.
- Auðkenni / Skýringatexti: Um er að ræða vanilluís í 2 l umbúðum með karamellusósu og sælgæti. Í sælgætinu er sojalesitín. Í innihalds-lýsingu á umbúðum vörunnar kemur ekki fram að hún innihaldi sojalesitín. Soja og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Einnig eru aðrar athugasemdir gerðar við merkingar vörunnar. Strikanúmer 5690581135601.
|
|
|
Ítarefni