Fara í efni

THC í hampolíu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Muna hampolíu sem Icepharma flytur inn vegna þess að það greindist THC (tetrahydrocannabinol) yfir leyfilegum hámarksgildum. THC er aðskotaefni í matvælum. Matvæli sem innihalda THC yfir hámarksgildum geta verið heilsuspillandi. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit í Reykjavík innkallað vöruna af markaði.

Matvælastofnun fékk fyrst upplýsingar um innköllunina í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Muna
  • Vöruheiti: Hampolía
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 30.01.2023
  • Strikamerki: 5694230036981
  • Lotunúmer: Q581
  • Nettómagn: 250 ml
  • Framleiðandi: IFTEA s.r.l.
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Innflytjandi: Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Krónan, Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðin, Iceland, Melabúðin, Heimkaup, Brauðhúsið, H verslun, Hjá Jóhönnu og Lyfjaver.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?