Skordýr í hrökkbrauði
Innkallanir -
03.12.2012
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun hefur fengið eftirfarandi upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík um innköllun frá neytendum og stöðvun á dreifingu á eftirtöldum matvælum:
- Vöruheiti: Speltknækbrød med græskarkerner og ost ,Knækbrød med hørfrø & sesam ,Knækbrød med græskarkerner
- Ábyrgðaraðili; framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Tiger
- Auðkenni/skýringartexti: Staðfest er að skordýr séu í pakkningum og varan því óhæf til neyslu. best fyrir dagsetningu 28.02.2013.
- Laga- /reglugerðarákvæði: a)- og c) liðir 8. gr. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
- Áætluð dreifing innanlands: Verslanir Tiger Smáralind, Kringlunni, Laugavegi og Akureyri.