Fara í efni

Salmonella í svínseyrum fyrir gæludýr

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Fyrirtækið Petmark ehf hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað svínseyru fyrir gæludýr eftir að salmonella greindist í sýni. Um er að ræða ópökkuð svínseyru sem seld voru í sjálfvali í verslunum Gæludýr.is og Bendir síðastliðnar fjórar vikur (1.5.2021-6.6.2021). 

Upplýsingar um vöru:

  • Vöruheiti: Svínseyru
  • Innflytjandi: Petmark ehf, Völuteig 6, 270 Mosfellsbæ .
  • Framleiðsluland: Þýskaland
  • Framleiðandi: Be-So GmbH
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 13.5.2022. ATH engar umbúðir. Innköllunin á við svínseyru keypt í Gæludýr.is og Bendi á sl. 4 vikum
  • Geymsluskilyrði: Ambient
  • Dreifing: Bendir og verslanir Gæludýr.is

Eyra

Þeir sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að skila henni á sölustað eða farga henni.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?