Salmonella í kjúklingi
Innkallanir -
02.05.2025
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á einni framleiðslulotu vegna gruns um salmonellusmitaða ferskar kjúklingafurðir frá Matfugli ehf. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í varúðarskyni og í samráði við Matvælastofnun sent út fréttatilkynningu.
Einungis er verðið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Ali og Bónus
- Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ
- Lotunúmer: 011-25-13-3-68 (heill kjúklingur, bringur, lundir, lærakjöt, bitar, kryddlegnir leggir og heill fugl), pökkunardagur 28.04.2025 – 30.04.2025
- Dreifing: Bónusverslanir, Krónuverslanir, Kauptún
Hægt er að skila í verslun eða til Matfugls ehf. til að fá endurgreitt. Mjög mikilvægt er að gegnhita kjúkling við matreiðslu en þá er kjötsafinn í þykkasta bitanum orðinn tær og steikingahitamælir sýnir a.m.k. 75°C.