Fara í efni

Óöruggt kjöt í nautakjötsrétti (Bapao beef)-uppfært

Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Bapao beef frá Tjendrawasih sem Fiska/Lagsmaður flytur inn þar sem óvissa er um öryggi kjöts sem notað var í vöruna.  Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF). Einnig selt í verslun Dai Phat í Reykjavík og hefur fyrirtækið innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Tilkynningin barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Tjendrawasih
  • Vöruheiti: Bapao beef
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is og Dai Phat
  • Best fyrir 6.11.2026, 9.1.2027 og 12.2.2027
  • Framleiðsluland: Taíland
  • Framleiðandi: Dutch Bakery Group B.V. (Tjendrawasih), Ivoorstraat 15, 1812 RE Alkmaar, Netherlands
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur og Dai Phat supermarket, Faxafeni 14

Neytendur skulu ekki neyta vörunnar heldur farga henni eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?