Fara í efni

Of mikið B6-vítamín í fæðubótarefni

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á fæðubótarefninu B-SÚPER. Heilsa ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað fæðubótarefnið af markaði vegna of mikils magns af B6-vítamíni. Varan inniheldur 50mg B6 í hverjum skammti en efri öryggismörk skv. matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) eru 25mg á dag.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við: 

  • Vöruheiti: Guli miðinn- B-súper 30 og 120 töflur 
  • Vörunr: 00b30a og 00b20a 
  • Strikanr: 5690684000196 og 5690684000172 
  • Framleiðslulota: Allar 
  • Dagsetning: Allar 
  • Dreifing: Heilsuhúsinu, Lyfju, Lyfjum og Heilsu, Apótekaranum, Apótekinu, Krónunni, Nettó, Urðarapóteki, Apótek Mos, Iceland, Lyfjaveri, Borgarapóteki, Fjarðarkaupum, Melabúðinni, Reykjanesapóteki, Garðsapóteki, Kaupfélagi Skagfirðinga og Austurbæjarapóteki

Of mikið magn B6-vítamíns getur leitt til einkenna eins og skyntruflana, doða í höndum og fótum, ljósnæmi o.fl. Einkenni hverfa yfirleitt þegar neyslu er hætt. 

Þeir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að skila henni á sölustað gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670.

Ítarefni

Frétt uppfærð 15.05.18 kl. 16:18


Getum við bætt efni síðunnar?