Fara í efni

Innköllun á Frugt til Smoothies vegna framleiðslugalla

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um innköllun á vöru vegna framleiðslugalla.

Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á ávaxtablöndunni Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ þar sem aðskotahlutur fannst í einni pakkningu af vörunni.  Um er að ræða varúðarráðstöfun og einskorðast innköllunin eingöngu við vöru með eftirfarandi upplýsingum:



   
Tegund innköllunar:  Aðskotahlutur.
Vöruheiti:  Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“.
Umbúðir:  Poki.
Nettóþyngd:  391 g
Framleiðandi:  Zhejiang Zhongda Newland Co. Ltd. Í Kína fyrir Dansk Supermarked A/S í Danmörku.
Geymsluskilyrði:  Frystivara.
Best fyrir:  14.10.2011 (prentað neðst á bakhlið).
Pökkunardagur:  14.04.2010.
Strikanúmer:  5701012876748.  
Dreifing:  Verslanir Bónuss og Hagkaupa um land allt.

Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ með ofangreindri best fyrir merkingu er ekki lengur á markaði. Neytendur sem eiga  í fórum sínum Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ með ofangreindri best fyrir merkingu eru beðnir um að hafa samband við Aðföng í síma 530 5645 eða á netfangið gaedastjori hjá adfong.is.


Ítarefni




Getum við bætt efni síðunnar?