Fara í efni

Innköllun á First Price paprikustrimlum vegna glerbrots

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

  Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá RASFF viðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður um að glerbrot hefur fundist í FirstPrice paprikustrimlum í Danmörku. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur verið upplýst um málið og innköllun á vörunni hefur verið framkvæmd. Umrædd vara er First Price paprikastrimler í 340g krukkum. Innköllunin gildir eingöngu fyrir vörur með "best fyrir" dagsetningu: 06.09.2011. Upplýsingar um "best fyrir" dagsetningu má finna á loki vörunnar.
 

Varan var fáanleg í verslunum Nóatúns og Krónunnar og í Kaupfélagi Skagfirðinga. Vörurnar eiga ekki að vera lengur á markaði en þeim sem keypt hafa vöruna er bent á að hægt er að skila henni í viðkomandi verslun. Einnig er hægt að hafa samband við Kaupás í síma 458 1000 sem er innflytjandi vörunnar. Innflytjandinn mun senda fréttatilkynningu um innköllunina.



Getum við bætt efni síðunnar?