Fara í efni

Grunur um listeríu í frosnum maísbaunum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum maísbaunum vegna gruns um listeríu. Upplýsingar komu um innköllunina í gegnum RASFF,evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli á markaði. Fyrirtækið Samkaup mun í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, innkalla vöruna af markaði.  Verslanir munu fá upplýsingar og fjarlægja maísinn af markaði. Uppruni maísbaunanna er frá Ungverjalandi og ungverska fyrirtækið Greenyard hefur sent út fréttatilkynningu varðandi innköllunina.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

  • Vöruheiti: COOP extra söde majs
  • Vörumerki: COOP 
  • Framleiðandi: Greenyard frozen Hungary Kft.
  • Innflytjandi: Samkaup, Krossmóa 4, 260 Reykjanesbær
  • Strikamerki:7340011431084
  • Lýsing: 650 g plastpokar
  • Framleiðsla: í agúst 2016 til og með nóvember 2017
  • Geymsluskilyrði: frystivara
  • Dreifing: Verslanir Samkaupa; Samkaup Úrval, Samkaup Strax, Nettó, Sunnubúð, Krambúð og Kjörbúðin.

Um listeríu á heimasíðu Matvælastofnunar má lesa nánar: http://www.mast.is/matvaeli/matarsykingar/listeriamonocytogenes/



Getum við bætt efni síðunnar?