Fara í efni

Grunur um listeríu í fiskréttum

Matvælastofnun varar við neyslu á forsteiktum fiski í raspi og fiskstöngum frá Grimi Kokki ehf. sem framleidd eru með best fyrir janúar 2027 vegna grun um Listeriu monocytogenis.

Um er að ræða innköllun á allar framleiðslulotur með best fyrir janúar 2027.

  • Vörumerki: Grímur kokkur ehf
  • Vöruheiti: Forsteiktur fiskur í raspi, Forsteiktar fiskistangir
  • Lýsing á vöru: Forsteiktur fiskur í raspi, Forsteiktar fiskistangir
  • Framleiðandi: Grímur kokkur ehf
  • Rekjanleiki: Allar vörur sem hafa Best fyrir janúar 2027.
  • Strikanúmer:
    Forsteiktur fiskur í raspi: 5690904000043 / 5690904004041
    Forsteiktar fiskistangir: 5690904004904 / 5690904014903
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Dreifingarlisti: Krónan, Hagkaup, Samkaup, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag V-Húnvetninga, Reykjavíkurborg, Hrunamannahreppur, Útflutningsfiskur ehf, Skerjakolla, Verslunin Kassinn ehf.

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða fá endurgreitt í verslun sem hún var keypt.

Ítarefni

 

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?