Fara í efni

Glerbrot í rauðkáli

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um innköllun á  rauðkáli af markaði. Glerbrot fannst í einu tilfelli og var því ákveðið að innkalla eina framleiðslulotu til verndar neytendum. Einungis er um að ræða innköllun á framleiðslulotu merktri best fyrir dagsetningu 15.11.2014. 

  • Vöruheiti: HEIMA Rauðkál 
  • Strikamerki: 5690350050999 
  • Nettóþyngd: 1010g 
  • Best fyrir dagsetning: 15-11-2014 
  • Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Bónusar og Stórkaups.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?