Fara í efni

Aðskotahlutur í pestó

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á Himneskt Lífrænu rauðu pestói vegna aðskotahlutar (glerbrots) sem fannst í einni krukku. Innflytjandinn, Aðföng, hefur innkallað lotu merkta með best fyrir dagsetningu í október 2022, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.  

Einungis er verðið að innkalla neðangreinda lotu:

  • Vörumerki: Himneskt
  • Vöruheiti: Lífrænt rautt pestó
  • Strikamerki: 5690350050692
  • Nettómagn: 130g
  • Best fyrir dagsetningar: Allar í október 2022
  • Framleiðandi: La Dispensa di Campagna Srl, Toskana
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups um land allt

Himneskt lífrænt rautt pestó

Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 og á netfanginu gaedastjori hjá adfong.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?