Fara í efni

Efni með lyfjavirkni í tei

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á tei vegna þess að það inniheldur lyfjavirkt efni úr plöntunni garðabrúðu sem er B-merkt jurt skv. Lyfjastofnun. Fyrirtækið Te og kaffi hefur stöðvað dreifingu og innkallað teið, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Nánar um vöruna:

  • Vöruheiti: I feel calm
  • Lotunúmer: til og með 09/2018
  • Framleiðandi: Te & kaffi
  • Dreifing: Kaffihús Te & kaffi, Fjarðarkaup og Gamla bakaríið

I feel calm te

Fyrirtækið biður neytendur sem keypt hafa vöruna að skila henni þar sem hún var keypt.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?