Fara í efni

Aflatoxín myglueitur í fræjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af melónufræjum frá Essen AlHasnaA vegna aflatoxíns myglueiturs, sem Miðausturlandamarkaðurinn flytur inn. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Premium Class-Roter Wassermelonenkerne.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður og lét eftirlitið vita.

Innköllunin á einungis við eftirtalda framleiðslulotu;

  • Vörumerki: Essen AlHasnaA
  • Vöruheiti: Premium Class - Roter Wassermelonenkerne
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 31.12.2022
  • Strikamerki: 2021-8600716
  • Nettómagn: 300 g
  • Framleiðsluland: Lebanon
  • Dreifing: Miðausturlandamarkaðurinn, Lóuhólum 6, 111 Reykjavík

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til versluninnar gegn endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?