Fara í efni

Viðbúnaður vegna hættu á eldgosi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Meðal hlutverka Matvælastofnunar er að sinna eftirliti með heilbrigði og velferð dýra. Héraðsdýralæknar eru starfsmenn stofnunarinnar og yfirmenn hverra af sex umdæmisskrifstofum hennar. Lykilhlutverk þeirra þegar náttúruhamfarir verða er að hafa eftirlit með að velferð og heilbrigði dýra sé sem best tryggt.

Héraðsdýralæknar í Norðausturumdæmi og Austurumdæmi hafa þegar sett sig í samband við sýslumenn og eru þau nú boðuð á fundi aðgerðastjórna á svæðunum. Jafnframt hafa þau haft samband við búfjárráðunauta og aðra aðila í sínum umdæmum sem tengjast aðgerðum er lúta að dýrum og munu í gegnum þessa aðila fylgjast með og aðstoða eftir þörfum. Þau hafa einnig beðið forsvarsmenn sláturhúsa um að vera viðbúin því að annast neyðarslátrun búfjár ef þörf krefur.

Unnið er að því að skipuleggja hvert fara má með fé ef til þess kemur að það þurfi að flytja yfir varnarlínur.

Samband hefur verið haft við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og óskað eftir að samráðshópur um vöktun á flúori í jarðvegi, gróðri, vatni og búfé verði endurvakinn.

Landupplýsingaþekjur Matvælastofnunar sem sýna staðsetningu búa og hvaða búfjártegundir er að finna á hverju búi hafa verið sendar til Veðurstofunnar sem vinnur að gerð líkans um flóð af völdum eldgoss. Þekjurnar hafa einnig verið sendar til Almannavarna.

Stofnunin óskaði eftir að eiga fulltrúa í Samhæfingarstöð Almannavarna sem sæti þar eftir þörfum og þjónaði sem tengiliður milli miðlægra viðbragðsaðila og þeirra aðila sem sinna málum er lúta að velferð og heilbrigði dýra. Almannavarnir hafa orðið við þeirri ósk.


Getum við bætt efni síðunnar?