Fara í efni

Varðandi flutning á líflömbum

Varðandi flutning á líflömbum – helstu reglur.

  • Opið er fyrir umsóknir um sölu á líflömbum og skal skila umsóknum inn fyrir 1. júlí
  • Ekki er leyfilegt að selja eða flytja lömb sem ekki hafa verið arfgerðagreind
  • Ekki er leyfilegt að selja eða flytja lömb með VRQ arfgerð (rautt flagg) – hvort heldur sem er innan hólfa eða yfir varnarlínur
  • Ekki er leyfilegt að selja eða flytja lömb með ARQ/ARQ (gul flögg báðum megin) inn í áhættuhólf nema með sérstöku leyfi Matvælastofnunar og þá eingöngu af líflambasölusvæðum
  • Almenna reglan er að ekki þarf að sækja um kaupaleyfi. (örfáar undantekningar)
  • Til þess að fá útgefið söluleyfi þarf umsækjandi að vera með fé sitt skráð í Fjárvís

Verklagsreglur varðandi sölu/flutning líflamba er að finna á upplýsingarsíðu. Einnig eru númer á umsóknareyðublöðum þar. 


Getum við bætt efni síðunnar?