Matvælastofnun varar við tínslu kræklings úr fjörum landsins
Eiturþörungar hafa ár eftir ár verið viðvarandi í sjó í Hvalfirði yfir sumartímann. Maí og júní hafa verið sólríkir og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr Hvalfirði og öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu við landið.
Neytendur þurfa ekki að varast krækling (bláskel) sem ræktaður er hérlendis og er á markaði í verslunum og veitingahúsum. Kræklingaræktendur taka reglulega sýni af skelkjöti og sjó til að fylgjast með magni eitraðra þörunga í sjó og hvort skelkjötið innihaldi þörungaeitur. Ræktun og markaðsetning er einnig undir eftirliti Mast og heilbrigðiseftirlits. Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast hér. Þörungaeitur í skelfiski | Matvælastofnun
Svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir mynda þörungaeitur sem er hættulegt mönnum og dýrum. Vöxtur og eiturmyndun í þörungum er ekki fyrirsjáanleg, því getur hættan sprottið upp á gróðurtímabili þörunga, frá mars mánuði og fram á vetur. Skelfiskurinn sem étur eiturþörunga safnar í sig eitrinu án þess að það hafi áhrif á hann sjálfan. Eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá þeim sem neyta skelfisks sem hefur safnað upp þörungaeitri. Upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar Um þörungaeitranir / Hafrannsóknastofnun