Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar í Skafís og Rjómaís
Frétt -
07.04.2011
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar frá Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um vanmerkingar vegna ofnæmis og óþolsvalda og að eftirfarandi vörur verði innkallaðar af markaði:
Vöruheiti: "Skafís - vanilluís með Daim-kúlum" og "Rjómaís með Daimkúlum".
![]() |
|
Ábyrgðaraðili;
framleiðandi, innflytjandi og/eða dreifingaraðili: Vörurnar eru
framleiddar af Emmessís, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík. Auðkenni/skýringartexti: Um er að ræða vanilluís með Daim-kúlum í 1,5 l umbúðum og rjómaís með Daim-kúlum í 1,5 l umbúðum. Í Daim-kúlunum eru hnetur (möndlur) og sojalesitín. Í innihaldslýsingum á umbúðum varanna kemur ekki fram að þær innihalda hnetur og sojalesitín en hvort tveggja er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Fyrirtækið hætti framleiðslu á Daim ís í 2 l umbúðum um mitt síðasta ár en þessi ís getur þó leynst á markaði (s.s. á heimilum). Einnig eru gerðar eftirfarandi athugasemdir við umbúðamerkingar matvælanna: Innihaldslýsingar Daim-kúlanna vantar. Tilvísun í staðsetningu "best fyrir" merkingar vantar. Laga- /reglugerðarákvæði: 12., 13. og 20. gr. reglugerðar nr. 503/2005 um merkingu matvæla, með síðari breytingum. 8. og 30. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Áætluð dreifing innanlands: Um land allt. |
Ítarefni