Fara í efni

Vanmerktar smjördeigskökur vegna óleyfilegs tungumáls

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu um innköllun á Estrella de Hojaldre spönskum smjördeigskökum frá Dulcinove Pastelería  sem Costco Ísland flytur inn. Innköllunin er vegna vanmerkingar en einungis var merking á spænsku. Upplýsingar sem skylt er að merkja á matvörur verða að vera á íslensku eða ensku eða norðurlandamáli öðru en finnsku. Fyrirtækið hefur innkallað frá kaupendum  í samráði við heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar (HEF).

Innköllunin á eingöngu  við um eftirfarandi framleiðslulotu;

  • Vörumerki: Dulcinove Pastelería
  • Vöruheiti: Puff Pastry Stars
  • Framleiðandi: Productos Jesus S.L.
  • Innflytjandi: Costco Ísland
  • Framleiðsluland: Spánn
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Júní 11 2024, lota 011-624
  • Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.
  • Dreifing: Costco Ísland

Kaupendum sem hafa verslað vöruna í Costco er bent á að skila henni í verslunina gegn fullri endurgreiðslu.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?