Upprunagreining laxa sem veiðst hafa í ám - uppfært
Sameiginleg frétt Matvælastofnunar, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar um stöðu upprunagreininga laxa sem veiðst hafa.
Samtals hafa sýni úr 30 löxum verið send til erfðagreiningar. Af þessum eru tíu fiskar staðfestir eldislaxar og því 20 sem reyndust villtir. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Sýni úr þremur löxum eru í erfðagreiningu.
Rakning stendur yfir á staðfestum eldislöxum og enn benda niðurstöður til sameiginlegs uppruna níu laxa úr Dýrafirði. Svo virðist sem einn staðfestur eldislax hafi annan uppruna og rannsókn stendur yfir á uppruna þess fisks. Stofnanirnar þrjár starfa áfram saman að rannsókn málsins og veita upplýsingar þegar frekari niðurstöður liggja fyrir.
Áfram er mikilvægt að fylgjast vel með því hvort fleiri laxar með eldiseinkenni komi fram í ám og veiðimenn eru sérstaklega beðnir að vera vakandi yfir eldiseinkennum á veiddum löxum, sjá hér.
Ef lax með eldiseinkenni veiðist er þess óskað að veiðiaðili skili fisknum í heilu lagi til Hafrannsóknastofnunar til rannsókna og erfðagreiningar.