Fara í efni

Umdæmi héraðsdýralækna verða fjögur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Þann 1. júní n.k. verður umdæmum héraðsdýralækna Matvælastofnunar fækkað úr fimm í fjögur. Austurumdæmi verður lagt niður og skipt upp þannig að nyrðri hluti þess frá Hamarsá (Hamarsfjarðar-varnarlínu) mun tilheyra Norðausturumdæmi með umdæmisskrifstofu á Akureyri, en frá Hamarsá og suður um tilheyra Suðurumdæmi með umdæmisskrifstofu á Selfossi.

Skrifstofur Matvælastofnunar á Egilsstöðum og Neskaupstað verða áfram reknar þar samhliða skrifstofu umdæmisins á Akureyri.

Umdæmi 2021

Við endurskoðun á fyrirkomulagi dýralæknisþjónustu í dreifðum byggðum landsins árið 2020 var ákveðið að fækka héraðsdýralæknum samhliða að auka verkkaup af dýralæknum í dreifðum byggðum til að tryggja öruggari aðgengi íbúa að dýralæknaþjónustu. Seinni áfangi verður nú stiginn sem er fækkun úr fimm umdæmum í fjögur en fyrri áfanginn var stiginn í fyrra þar sem Vesturumdæmi var skipt upp milli Suðvestursumdæmis og Norðvestursumdæmis.

Umdæmin eru nú þessi:

  • Suðvesturumdæmi: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Kjósarhreppur, Kópavogsbær , Mosfellsbær, Reykjanesbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Skorradalshreppur, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar. 
  • Norðvesturumdæmi: Akrahreppur, Árneshreppur, Blönduósbær, Bolungarvíkurkaupstaður, Dalabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Skagabyggð, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.
  • Norðausturumdæmi: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Fjarðarbyggð, Fljótsdalshreppur,Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Múlaþing (að Hamarsfjarðarlínu), Norðurþing, Skútustaðahreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur Vopnafjarðarhreppur og Þingeyjarsveit.
  • Suðurumdæmi: Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Múlaþing sunnan Hamarsfjarðarlínu, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.

Uppfært 28.05.21 kl. 15:14


Getum við bætt efni síðunnar?