Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi FISK-Seafood til fiskeldis í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir FISK-Seafood ehf. vegna fiskeldis á landi að Laxabraut 5 í Þorlákshöfn. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 900 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á bleikju.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. júlí 2021.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?