Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Bleikju ehf. til fiskeldis að Laugum í Landsveit

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Bleikju ehf. vegna fiskeldis á landi að Laugum í Landsveit. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 100 tonna hámarkslífmassa vegna seiða- og matfiskeldis á bleikju, laxi og regnbogasilungi.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. apríl 2023.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?