Fara í efni

Tillaga að rekstrarleyfi Arnarlax til fiskeldis að Gileyri í Tálknafirði

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Arnarlax hf. vegna fiskeldis að Gileyri í Tálknafirði. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 1.000 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og bleikju.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 6. desember 2023.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?