Til hundaeigenda - sýnið mikla varúð með hunda í bílum í blíðunni
Matvælastofnun vill benda hundaeigendum á að skilja hunda ekki eftir í bílum þegar heitt er í veðri.
Samkvæmt 21. grein reglugerðar um aðbúnað gæludýra má ekki skilja hund eftir í eða á flutningstæki án eftirlits ef hitastig í farartækinu getur farið yfir +25°C eða undir -5°C, og aldrei má skilja hund einan eftir í flutningstæki ef hann sýnir merki um vanlíðan.
Hitastig í bílum sem sólin skín á getur mjög fljótt farið upp fyrir 25°C, jafnvel þótt töluvert kaldara sé úti og gluggar séu opnir. Hundar, sér í lagi stuttnefja hundar, aldraðir og mjög ungir hundar, þola hita afar illa. Allir hundar geta verið í hættu að fá hitaslag ef hiti í rými er yfir 25°C og þeir geta ekki kælt sig. Geta þeir þá drepist á skömmum tíma og eru því miður dæmi um slíkt á Íslandi.
Gætum vel að dýrunum okkar svo allir geti notið góðviðrisins.
Ítarefni: