Strok laxfiska úr landeldisstöð
Matvælastofnun barst tilkynning þriðjudaginn 16. desember 2025 frá Laxey í Vestmannaeyjum vegna stroks úr eldisstöð þeirra í Viðlagafjöru.
Samkvæmt upplýsingum frá rekstrarleyfishafa varð óhapp við flutning milli tanka í eldisstöðinni og í kjölfarið hafi fundust dauðir fiskar í fjöruborðinu þar sem fráveitan frá eldinu liggur. Fyrir liggja upplýsingar frá rekstrarleyfishafa um að tveir laxar hafi sloppið lifandi út í sjó. Rekstrarleyfishafi virkjaði strax viðbragðsáætlun vegna stroks, lagði út net og hóf veiðar.
Í umræddu eldiskeri voru 142.242 fiskar og meðalþyngd þeirra 2.2 kg.
Matvælastofnun rannsakar málið. Stofnunin telur að ekki sé hægt að útiloka að fleiri laxar hafi strokið. Stofnunin hefur kallað eftir frekari gögnum frá Laxey sem gætu varpað skýrari ljósi á atvikið.