Fara í efni

Sníklalyfið fipronil í hollenskum eggjum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í síðustu viku bárust upplýsingar frá Evrópu um að sníklalyfið fipronil hafi greinst í eggjum í Hollandi.  Dreifing eggja  frá ákveðnum eggjaframleiðendum var stöðvuð í kjölfarið.  Heil egg  á markaði  hérlendis eru af íslenskum uppruna. Unnar eggjaafurðir, t.d. gerilsneyddar eggjarauður, eggjahvítur og eggjaduft eru fluttar til landsins og samkvæmt athugun Matvælastofnunar eru þær upprunnar í Bretlandi, Danmörku, Hollandi og Þýskalandi. Ekki hafa borist tilkynningar frá Evrópska viðvörunarkerfinu (RASFF) um að menguðum eggjaafurðum hafi verið dreift til landsins. Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur eru nú að kanna uppruna þeirra eggja sem notuð voru í eggjaafurðir sem fluttar hafa verið til landsins frá framangreindum EES-ríkjum og munu ef ástæða er til stöðva dreifingu þeirra. 

Ein sending af eggjarauðudufti  frá Hollandi var að berast til landsins og hefur framleiðandi vörunnar upplýst að hráefni í hana komi ekki frá þeim eggjaframleiðendum sem hafi notað sníklalyfið fipronil. Áður en til dreifingar kemur mun Matvælastofnun afla frekari upplýsinga um uppruna og gæði hráefna í þeim tilgangi að tryggja öryggi afurða.

Fipronil er lyf sem er m.a. notað til meðhöndlunar gegn sníkjudýrum  á gæludýrum. Ekki er heimilt að nota lyfið á dýr sem sem gefa af sér afurðir til manneldis. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun er efnið flutt inn í  óverulegu magni til meðhöndlunar á gæludýrum. Matvælastofnun er ekki kunnugt um að umrædd sníkjudýr, rauðir hænsnamítlar, séu að valda vandræðum hjá eggjaframleiðendum hér á landi, en hins vegar hafa þau fundist á hænum í eigu einstaklinga.

Aðskotaefnaáætlun landbúnaðarafurða hjá Matvælastofnun tekur m.a. mið af sýnatökum og prófunum á afurðum með hliðsjón af magni innfluttra lyfja og því hefur greining á efninu fipronil ekki verið hluti af  henni. Hámarksgildi fipronils í eggjum er 0,005 mg/kg. Einkenni eitrunar geta verið ógleði, magaverkir, svimi, uppköst og flogaköst. Til langs tíma getur efnið valdið lifrar- og nýrnaskaða.

Erlendar stofnanir hafa framkvæmt áhættumat vegna þessa máls og hér fyrir neðan eru tenglar í áhættumat og umfjöllun BfR, sem er áhættumatstofnun Þýskalands, auk umfjöllunar sænsku og dönsku matvælastofnunarinnar um málið.  


Getum við bætt efni síðunnar?