Fara í efni

Skordýr í haframjöli

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á að skordýr hafa fundist í haframjöli frá First Price. Krónan hefur innkallað vöruna af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: First Price
  • Vöruheiti: Havregryn finvalsede
  • Strikanúmer: 7311041072981
  • Nettómagn: 1 kg
  • Best fyrir: 14.08.2019
  • Framleiðsluland: Danmörk
  • Innflytjandi: Krónan ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir Kristín Þorleifsdóttir hjá Krónunni ehf., kristin hjá kronan.is.

Ítarefni



Getum við bætt efni síðunnar?