Sérfræðistörf hjá Matvælastofnun
Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfulla
einstaklinga til
starfa við matvælalöggjöf og matvælaeftirlit. Um er að ræða störf við
eftirfarandi fagsvið stofnunarinnar og er óskað eftir
einstaklingum með háskólamenntun í matvælafræði, næringarfræði, lyfjafræði eða
aðra háskólamenntun sem nýtist í
starfi.
Um
fullt starf er að ræða við skrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
I. Matvæla- og neytendamálasvið:
• Umsjón með málaflokkum á sviði efnainnihalds matvæla
• Samskipti við neytendur, matvælafyrirtæki og eftirlitsaðila
• Þátttaka í gerð fræðsluefnis
• Vinna við matvælalöggjöf
• Samskipti við erlendar stofnanir
• Önnur verkefni
II. Áhættumats- og gæðastjórnunarsvið:
• Gerð verkferla og verklýsinga
• Uppsetning og viðhald gæðahandbókar
• Gerð eftirlitsáætlana
• Vinna við innri úttektir
• Samskipti við eftirlitsaðila
• Fræðslustarfsemi
III. Stjórnsýslusvið:
• Vinna við matvælalöggjöf
• Samskipti við EFTA skrifstofuna í Brussel
• Samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
• Önnur alþjóðleg samskipti
• Samskipti við ráðuneyti vegna löggjafar og alþjóðamála
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af eftirliti og opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Skipulags- og samskiptahæfileikar
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
• Vegna alþjóðamála, þekking á starfsemi EFTA, ESA og ESB
Um fullt starf er að ræða við skrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar veita Jón Gíslason (jon.gislason@mast.is) og Hafsteinn Jóh. Hannesson (hafsteinn.hannesson@mast.is) í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum Matvælamál eða með tölvupósti á mast@mast.is. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2008. Upplýsingar um Matvælastofnun má nálgast á www.mast.is