Fara í efni

Salmonella í Tahini

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Tahni Sesam Mus. Salmonella greindist í einni lotu af vörunni og hefur Miðausturlandamarkaðurinn stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Tahni Sesam Mus, 800g krukkur. Salmonella er baktería sem getur valdið alvarlegum sýkingum í mönnum. 

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum Rasff hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Al Burj
Vöruheiti: Tahni Sesam Mus
Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 12/08/2023
Strikamerki: 220332595
Nettómagn: 800 g
Framleiðandi: Kosebate.GmbH
Framleiðsluland: Sýrland

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en
einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslunina Miðausturlandamarkaðurinn, Lóuhólum 2‐4.
Nánari upplýsingar má nálgast í versluninni Miðausturlandamarkaðurinn.

Ítarefni

 


Getum við bætt efni síðunnar?