Fara í efni

Salmonella í kjúklingabitum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á SFC Boneless Bucket kjúklingabitum vegna salmonellumengunar. Aðföng sem flytur inn kjúklingabitana hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Matvælastofnun fékk upplýsingar frá Bretlandi í gegnum Infosan alþjóðaviðvörunarkerfi matvælastofnana og heilbrigðiseftirlitið hafði einnig  fengið upplýsingar frá Aðföngum.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi best fyrir dagsetningar:

  • Vöruheiti: SFC Boneless Bucket, Crunchy golden pieces of tasty, succulent Chicken Crispy Strips, Dippers and Poppets coated in a Southern Fried Style coating
  • Nettómagn: 650g
  • Strikamerki: 5031532020629
  • Geymsluskilyrði: Frystivara, -18°C
  • Lotunúmer: L19720
  • Best fyrir dagsetning: 28-11-2021
  • Upprunaland: Pólland
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
  • Dreifing: Hagkaupsverslanir um allt land

SFC kjúklingur

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori hjá adfong.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?