Fara í efni

Salmonella í hamborgara

Matvælastofnun vill vara neytendur við einni framleiðslulotu af Íslandsnaut Smach Style hamborgara (100g) frá Ferskum kjötvörum vegna salmonellu sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  • Vöruheiti: Íslandsnaut Smash Style hamborgara (100g)
  • Nettómagn: 100g
  • Umbúðir: Plastumbúðir og pappi
  • Strikamerki: 1569431193000
  • Best fyrir dagsetning: 24/04/2026
  • Lotunúmer: 064-6-099-04
  • Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C
  • Framleiðandi: Aðföng/Ferskar kjötvörur, Síðumúla 34
  • Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups

Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða fara með til verslunarinnar og fá endurgreitt.

Ítarefni

 

 


Getum við bætt efni síðunnar?