Fara í efni

Rannsókn á gallaðri framleiðslulotu Stoðmjólkur

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hafa borist niðurstöður rannsóknar MS á framleiðslulotu Stoðmjólkur sem innkölluð var í síðustu viku. Í lotunni mældist veruleg hækkun á svokölluðum fríum fitusýrum. Þær losna úr fitu vörunnar og geta orsakað vont bragð í mjólkinni. Ekki greindust sjúkdómsvaldandi örverur í mjólkinni og gefa niðurstöðurnar ekki tilefni til að ætla að Stoðmjólkin hafi verið skaðleg þeim börnum sem innbyrtu hana.

Matvælastofnun mun fylgjast áfram með rannsókninni.  Beðið er frekari niðurstaðna úr sýnum sem send voru erlendis til rannsóknar. Gefi þær tilefni til að endurskoða ofangreindar niðurstöður mun Matvælastofnun upplýsa frekar um málið.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?