Fara í efni

Nýlegar iðrasýkingar af völdum salmonellu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Frá því í ágúst sl. hafa 12 einstaklingar greinst með iðrasýkingu af völdum Salmonella Typhimurium hér á landi. Þessi fjöldi er talsvert umfram það sem búast má við af þessari tegund salmonellu. Flestir einstaklinganna hafa greinst á suðvesturhorni landsins en eitt á Austurlandi.

Þessar bakteríur virðast vera af sama stofni. Enn er með öllu óljóst um uppruna þessa smits en sóttvarnalæknir rannsakar þetta mál í samvinnu við sýklafræðideild Landspítala, Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit viðkomandi svæða.

Árlega greinist salmonellusýking hjá um 40 einstaklingum hér landi en sem af er 2016 hafa rúmlega 20 einstaklingar greinst.

Á þessu stigi er ekki tilefni til að vara við neyslu tiltekinna matvæla en rétt er hins vegar að benda fólki á skynsamlega meðferð matvæla og vanda matargerð svo forðast megi sýkingu af iðrabakteríum.

Ítarefni

Sóttvarnalæknir og Matvælastofnun


Getum við bætt efni síðunnar?