Myglueitur í Sportmix kattafóðri
Frétt -
22.01.2021
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við Sportmix original cat food kattafóðri frá Midwestern pet food í 6,8kg pokum vegna aflatoxín myglueiturs. Fyrirtækið Pak ehf. hefur innkallað fóðrið með aðstoð Matvælastofnunar. Fóðrið var tekið úr netsölu í lok desember og haft samband við kaupendur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Sportmix original cat food
- Þyngd: 6,8 kg (15 lbs)
- Framleiðandi: Midwestern pet foods
- Lotunúmer: Allar dagsetningar fyrir eða 07.09.22/ lotunúmer 07092021L3 05
- Framleiðsluland: Bandaríkin
- Innflytjandi: Pak ehf., Strandgata 32, 220 Hafnarfirði
- Dreifing: https://www.litlagaeludyrabudin.is/netverslun/
Aðilum sem eiga þetta fóður er bent á að skila því til PAK ehf., Melabraut 19, 220 Hafnarfirði eða hringja í síma 517 8119.
Aflatoxín er eitur framleitt af myglusveppnum Aspergillus flavus sem getur vaxið á maís og öðru korni sem notað er í gæludýrafóður. Ef eitrið er mikið í vörunni getur það valdið veikindum eða jafnvel dauða.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Pak ehf.
- Fréttatilkynning Midwestern pet food
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook
Uppfært 22.01.21 kl. 15:23