Fara í efni

Mjólk í vegan NO MOO súkkulaðibúðingi

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun vekur athygli neytenda með mjólkurofnæmi eða -óþol og vegan neytenda á NO MOO súkkulaðibúðingi sem seldur er í verslunum Iceland. Búðingurinn getur innihaldið snefilmagn af mjólk án þess að það komi fram á umbúðum.

Allar framleiðslulotur eru innkallaðar af Iceland búðunum með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. 

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF.

Innköllunin á við allar lotur og best fyrir dagsetningar:

  • Vöruheiti: NO MOO Chocolate puddings
  • Innflytjandi: Samkaup
  • Best fyrir dagsetningar: Allar Best fyrir dagsetningar eru innkallaðar
  • Framleiðsluland: Frakkland
  • Dreifing: Verslanir Iceland Arnarbakka, Engihjalla, Glæsibæ, Hafnarfirði og Vesturbergi

Neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað henni í næstu Iceland verslun gegn endurgreiðslu.

Ítarefni

Uppfært 29.01.20 kl. 9:28


Getum við bætt efni síðunnar?