Fara í efni

Málmstykki í veganrétti

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á einni framleiðslulotu af breskum veganrétti Shicken Butter Curry sem Veganmatur ehf. flytur inn vegna málmhlutar sem fannst vörunni. Fyrirtækið, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað vöruna.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Shicken.
  • Vöruheiti: Shicken Butter Curry.
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 09.08.2023
  • Lotunúmer: 05217.
  • Strikamerki: 5065008359043.
  • Innflytjandi: Veganmatur ehf., Faxafeni 14.
  • Framleiðandi: Shicken Foods.
  • Framleiðsluland: Bretland.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar, Nettó, Hagkaupa og Vegan búðin.

 

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?