Fara í efni

Málþing um riðu

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Héraðsdýralæknir Matvælastofnunar mun fræða bændur og aðra áhugasama um riðuveiki í sauðfé á málþingi um riðu þriðjudaginn 17. janúar kl. 20:00 í Miðgarði í Varmahlíð. Félag sauðfjárbænda í Skagafirði og Búnaðarsamband Skagfirðinga standa fyrir málþinginu.

Fluttir verða fyrirlestrar um arfgerðir, arfgerðargreiningar, smitleiðir og rannsóknir sem hafa verið gerðar varðandi riðu. Farið verður yfir sögu riðuveiki á íslandi og sitthvað fleira rætt. Meðal fyrirlesara verða Jón Kolbeinn Jónsson, héraðsdýralæknir Matvælastofnunar í Norðvesturumdæmi, Stefanía Þorgeirsdóttir, líffræðingur á Keldum og Sigtryggur Björnsson, búfræðikandidat.

Bændur eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um þennan hvimleiða vágest sem illa gengur að uppræta, þó talsvert hafi áunnist í þeirri baráttu frá því sem var fyrir nokkrum áratugum.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?