Fara í efni

Mælaborð fiskeldis

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Mælaborð fiskeldis hefur verið birt á vef Matvælastofnunar. Í mælaborðinu eru birtar framleiðslutölur og rekstrarleyfi eldisfyrirtækja, ásamt staðsetningu eldissvæða og niðurstöðum eftirlits stofnunarinnar. Markmið birtingar er að auka gagnsæi fiskeldis og veita almenningi og hagsmunaaðilum hagnýtar upplýsingar um starfsemina.

Mælaborðið var formlega opnað í morgun af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á opnum streymisfundi ráðuneytisins og Matvælastofnunar:

Mælaborðið birtir lífmassa sjókvíaeldis, sláturtölur, afföll og fóðurnotkun á landsvísu frá 1. janúar 2020. Hægt er að skoða lífmassa í sjókvíaeldi, umfang rekstrarleyfa, áhættumat, burðarþol, afföll og fjölda laxalúsa eftir landshlutum og fjörðum. Ársframleiðsla eftir fisktegundum og landshluta er birt aftur til ársins 2004 fyrir land- og sjókvíaeldi.

Kortasjáin sýnir staðsetningar eldissvæða um landið og hvaða svæði eru í notkun eða í umsókn, ásamt þróun lífmassa, fjölda laxalúsa og afföll (%). Einnig er hægt að sjá uppruna og tegund þeirra fiska sem aldir eru á hverju svæði.

Kynning á Mælaborði fiskeldis
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Hjalti Andrason, upplýsingafulltrúi Matvælastofnunar kynna mælaborðið (Myndir: Golli)

Eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar vegna eftirlits með rekstri og búnaði fiskeldisstöðva eru birtar í mælaborðinu, ásamt rekstrarleyfum. Þar má einnig nálgast upplýsingar um stofnun fiskeldisstöðvar, lista yfir rekstraraðila í fiskeldi, ársskýrslur fisksjúkdóma og fundargerðir fisksjúkdómanefndar.

Ítarefni

Uppfært 15.04.21 kl. 11:43


Getum við bætt efni síðunnar?