Fara í efni

Kartöflumygla – Fylgjumst með kartöflugarðinum í sumar

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Um sjúkdóminn

Kartöflumygla af völdum sveppsins Phytophtora infestans er vel þekktur sjúkdómur á heimsvísu, en staðan hefur verið með betra móti á Íslandi síðustu áratugi og ekki komið upp miklir faraldrar.

Mygla á Suðurlandi sumarið 2021

Sumarið 2021 kom þó kartöflumygla upp á Suðurlandi. Mest bar á myglunni í Þykkvabæ og nærliggjandi svæðum á Suðurlandi. Rannsóknir á sýnum úr smituðum görðum af þessu svæði benda til þess að smit hafi borist til landsins með innfluttu útsæði eða matarkartöflum frá Danmörku, þar sem um var að ræða sama stofn (EU41 A2) er hefur náð mikilli útbreiðslu undanfarin ár í norðanverðri Evrópu.

Í sumar er því nokkur hætta á smiti frá sýktu útsæði frá fyrra ári, en einnig geta ný gró dreift sér með vindum, komi mygla upp.

Kartöflubændur, í samvinnu við ráðgjafa í garðyrkju, munu vinna að því að lágmarka áhættu á dreifingu og uppkomu smita á sínum svæðum með auknu eftirliti og notkun varnarefna. Veðurfar ræður miklu um það hvort sjúkdómurinn nái sér á strik, hlýtt og rakt veður eykur hættu á útbreiðslu. Mælst hefur verið til þess að kartöflubændur selji alls ekki útsæði af smituðum svæðum til almennings.

Tilmæli til áhugaræktenda

Brýnt er fyrir áhugaræktendum og almenningi að fylgjast vel með kartöflugörðum sínum í sumar. Samkvæmt ráðleggingum er best að setja ekki niður smitað útsæði í heimilisgarða, en erfitt getur þó verið að meta hvort útsæði beri með sér smit.
Mjög mikilvægt er að almenningur taki strax upp plöntur sem sýna einkenni smits og fargi þeim.
  • Einkenni: Svartir blettir á blaðendum og stönglum, að lokum falla grösin alveg.
  • Förgun: Fargið sýktum kartöflum og grösum strax, t.d. í svörtum ruslapokum, ekki setja í lífrænt rusl.

Ítarefni

Ítarlegri lesningu um kartöflumyglu er að finna í greinum Þóreyjar Gylfadóttur og Helga Jóhannessonar frá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins sem birtist í Bændablaðinu 19. apríl 2022 og í viðtali Vilmundar Hansen við Sigurgeir Ólafsson, plöntusjúkdómafræðing sem birtist 16. maí 2022.


Getum við bætt efni síðunnar?