Fara í efni

Íslenskt gin/Icelandic gin sem verndað afurðaheiti

Matvælastofnun hefur borist umsókn frá Samtökum Íslenskra Eimingarhúsa þar sem sótt er um vernd fyrir afurðaheitið „Íslenskt gin/Icelandic gin“.

Um er að ræða umsókn um vernd afurðaheitis skv. lögum um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu, nr. 130/2014 .

Sótt er í þessu tilviki um vernd sem vísar til uppruna sbr. 4. gr. laga nr. 130/2014. Skv. 2. mgr. 15. gr. sömu laga er heimilt að andmæla fyrirhugaðri skráningu á þessu afurðarheiti og afurðarlýsingu áður en endanleg ákvörðun er tekin um skráningu. Skal það gert innan tveggja mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar eða fyrir 21. apríl 2024. Andmælum skal skila skriflega til Matvælastofnunar á netfangið mast@mast.is. Afurðalýsingu er að finna hér fyrir neðan.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?